Skötuselur í mangóchutneysósu

Hráefni
» 700 g skötuselur
» 250 g rækjur
» 3 msk. karrímauk
» 3 msk. mangó-chutney
» 2 msk. kóríander
» 1 stk. stór hvítlauksgeiri
» grænmetiskraftur
» 1/4 lítri rjómi
» 4 msk. olía
» salt
» nýmalaður pipar

Aðferð

Hreinsið skötuselinn og skerið í jafna bita. Hrærið saman karrímauki og mangó-chutney og saxið kóríander út í maukið. Afhýðið hvítlauk, pressið og bætið út í maukið ásamt grænmetiskrafti og rjóma. Hitið olíu á pönnu. Steikið skötuselinn í um 1 mín. á hvorri hlið á vel heitri pönnunni. Kryddið með salti og pipar en athugið að það þarf lítið salt vegna saltinnihalds grænmetiskraftsins. Raðið skötuselnum í smurt eldfats mót og setjið maukið yfir. Bakið í 10 mín. við 200°C. Takið fatið út eftir 8 mín. og stráið rækjunum yfir. Setjið fatið inn í ofn í 2 mín. til viðbótar.

Roðflettið ýsuna og skerið smátt, í um 3 sm bita. Afhýðið lauk og hakkið í matvinnsluvél, mjög smátt. Saxið vorlaukinn. Saxið helminginn af basilíkunni en geymið restina til að nota í basilíkusmjörið.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar