Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Fylltur sólkoli
- Hráefni
- » 2 stk. sólkolar
- » 300 g humarkjöt
- » 1 stk. fenníka
- » 8 stk. basilíkublöð
- » 4 msk. „Crema de peporoni“-mauk
- » 2–4 msk. ólífuolía
- » salt og pipar
Aðferð
Skerið fenníku í tvennt og svo í langar ræmur. Setjið í sjóðandi vatn í 2 mín. og snöggkælið. Saxið basilíku og blandið henni saman við fenníkuna ásamt „Crema de peporoni“mauki. Bætið humarkjötinu saman við. Hreinsið kolana, afhausið og takið hryggbeinið úr. Smyrjið ofnskúffu með ólífuolíu og leggið fiskinn í. Kryddið með salti og pipar. Setjið fyllinguna í kolana og bakið síðan í ofni við 200°C í um 20 mín.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/783/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










