Blandaðir sjávarréttir

Hráefni
» 200 g lúða
» 200 g skötuselur
» 200 g rækjur
» 200 g humarkjöt
» 200 g hörpudiskur
» salt og pipar
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 2 msk. ólífuolía
» basilíkublöð
» 20 stk. oreganoblöð
» 2 stönglar kóríander
» 4 stk. kryddlegin þistilhjörtu
» 8 stk. sólþurrkaður tómatar
» 1 krukka niðursoðnir grænir tómatar
» 1/2 dl hvítvín
» 300 g mascarponeostur
» 1 msk. grænmetiskraftur frá Hugli
» 1/2 dl sítrónusafi
» 150 g parmesanostur

Aðferð

Hreinsið lúðu og skötusel og skerið í bita. Blandið rækjum, humri og hörpudiski saman við og kryddið með salti og pipar. Saxið basilíku, oregano og kóríander og stráið yfir fiskinn. Afhýðið hvítlauk, pressið út í ólífuolíuna og hellið yfir fiskinn. Maukið þistilhjörtu, sólþurrkaða tómata og niðursoðna tómata í matvinnsluvél. Setjið í pott ásamt hvítvíni og látið suðuna koma upp. Hrærið mascarponeosti saman við ásamt grænmetiskrafti, sítrónusafa og parmesanosti. Látið suðuna koma upp aftur og takið síðan strax af hitanum. Kælið aðeins. Setjið fiskinn í smurt eldfast mót, hellið sósunni yfir og bakið í ofni við 200°C í um 15 mín.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar