Þorskur með ansjósumauki

Hráefni
» 1 kg þorskhnakkar, 4 stk.
» 4 stk. niðursoðin þistilhjörtu
» 2 dósir ansjósur
» 1 stk. laukur
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 2 tsk. kapers
» 20 stk. svartar ólífur, steinlausar
» 2 stk. lime
» pipar
» 1/2 búnt garðablóðberg (timjan)

Aðferð

Sigtið olíuna af þistilhjörtum og ansjósum. Smyrjið eldfast mót með olíunni. Afhýðið lauk og hvítlauk og maukið í matvinnsluvél með helmingnum af ansjósunum, kapers og 10 ólífum. Raðið þorskhnökkunum í eldfasta mótið, piprið og kreistið safa úr einu lime yfir. Setjið ansjósumauk á þorskhnakkana og raðið restinni af ansjósunum og ólífunum yfir. Skerið lime í sneiðar og setjið til hliðar, á fatið. Bakið í 15 mín. við 200°C og skreytið síðan með garðablóðbergi.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar