Steinbítur með kremuðum lauk

Hráefni
» 700 g steinbítsflök
» 100 g hveiti
» 2–4 msk. ólífuolía
» sjávarsalt
» hvítur pipar úr kvörn
» 1–2 stk. rauðlaukar
» 1 stk. laukur
» 1–2 stk. skalottlaukar
» 1/2 stk. blaðlaukur
» 3–6 stk. hvítlauksgeirar
» 2 msk. smjör
» 2 dl rjómi
» 1 msk. fersk timjanlauf
» 1 stk. lime, safinn
» salt og hvítur pipar úr kvörn
» 2 msk. nýrifinn ostur
» 2 msk. brauðrasp

Fyrir 4

Aðferð

Snyrtið steinbítsflökin og skerið í átta jafna bita. Veltið fiskbitunum upp úr hveiti og brúnið í olíu á pönnu. Saltið og piprið eftir smekk. Afhýðið rauðlauk, lauk, skalottlauk og hvítlauk. Skerið allan laukinn í strimla og létt steikið í smjöri við vægan hita. Hellið rjómanum á pönnuna sjóðið niður þar til að rjóminn hefur þykknað. Saltið og piprið eftir smekk. Látið timjanlauf, án stilka út í. Sjóðið áfram þar til allt er vel samansoðið og þykkt. Bragðbætið að lokum með smá lime-safa eftir smekk.

Látið það sem er á pönnunni í eldfast form og raðið steiktu steinbítsbitunum þar ofan á. Blandið saman osti og brauðraspi og stráið jafnt yfir. Bakið í ofni við 200°C þar til að yfirborðið er orðið gullið. Berið fram með nýjum soðnum kartöflum, góðu fersku grænmeti eða stökku salati. Uppskriftin miðast við fjóra.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar