Ofnbökuð ýsa með karríkrydduðu grænmeti

Hráefni
» 750 g ýsuflök
» 4 msk. hveiti
» 1 msk. karrí
» kryddsalt
» 1 msk. smjör
» 1 msk. kornolía
» 1 poki hreinsað spínat

Aðferð

Roðflettið og snyrtið ýsuflökin og skerið í jafna bita. Blandið saman hveiti, karríi og kryddsalti. Veltið ýsubitunum upp úr kryddaða hveitinu og steikið upp úr smjöri og olíu á pönnu, við miðlungshita.

Raðið karrísteiktu ýsubitunum yfir og setjið inn í 140 °C heitan ofn í 10–12 mín. eða þar til allt er vel heitt. Berið fram með hrísgrjónum og stökku salati.

Þessi uppskrift er notuð í Karríkryddað grænmeti

Meðlæti

Karríkryddað grænmeti

Hráefni
» 1 stk. laukur
» 2–5 stk. hvítlauksgeirar
» 1 stöngull sellerí
» 1–2 stk. gulrætur
» 1 stk. paprika
» 1–2 stk. græn epli
» 2 tsk. karrí
» 1 tsk. paprikuduft
» 1 tsk. smjör
» 2 dl kjúklingasoð
» 1 dl rjómi
» hvítur sósujafnari
» salt og pipar

Aðferð

Afhýðið og saxið lauk og hvítlauk. Skerið sellerístöngul og gulrætur í teninga. Fræhreinsið paprikuna og skerið í teninga. Flysjið eplin og skerið í teninga. Létt steikið þetta upp úr smá smjöri við miðlungshita og stráið karríi og papriku yfir. Hellið kjúklingasoði og rjóma yfir og sjóðið við vægan hita í 5–7 mín. Þykkið eftir smekk með hvítum sósujafnara. Bragðið á og kryddið salti og pipar ef ykkur finnst þess þurfa.

Veltið spínatinu upp úr smjöri á pönnu og létt saltið. Látið spínatið á mitt ofnfast fat og karrígrænmetisjafninginn sitt hvoru megin við

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar