Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Karríkryddað grænmeti
- Hráefni
- » 1 stk. laukur
- » 2–5 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 stöngull sellerí
- » 1–2 stk. gulrætur
- » 1 stk. paprika
- » 1–2 stk. græn epli
- » 2 tsk. karrí
- » 1 tsk. paprikuduft
- » 1 tsk. smjör
- » 2 dl kjúklingasoð
- » 1 dl rjómi
- » hvítur sósujafnari
- » salt og pipar
Aðferð
Afhýðið og saxið lauk og hvítlauk. Skerið sellerístöngul og gulrætur í teninga. Fræhreinsið paprikuna og skerið í teninga. Flysjið eplin og skerið í teninga. Létt steikið þetta upp úr smá smjöri við miðlungshita og stráið karríi og papriku yfir. Hellið kjúklingasoði og rjóma yfir og sjóðið við vægan hita í 5–7 mín. Þykkið eftir smekk með hvítum sósujafnara. Bragðið á og kryddið salti og pipar ef ykkur finnst þess þurfa.Veltið spínatinu upp úr smjöri á pönnu og létt saltið. Látið spínatið á mitt ofnfast fat og karrígrænmetisjafninginn sitt hvoru megin við
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/790/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










