Rísottó með blönduð um fiski og skelfiski

Hráefni
» 350 g ítölsk rísottóhrísgrjón
» 3–4 stk. skalottlaukar
» 1–2 stk. hvítlauksgeirar
» 2 msk. smjör
» 1 dl hvítvín
» 1–1,2 l kjúklinga- eða fiskisoð
» hnífsoddur saffran
» 2 dl rjómi
» 400 g blandaður fiskur og skelfiskur: t.d rækjur, humar, hörpudiskur, smokkfiskur, skötuselur og lúða
» 300 g spínat
» 1 dós niðursoðnir tómatar
» 2 msk. balsamedik
» 1 msk. hlynsíróp
» 1 búnt fersk basilíkulauf
» salt og hvítur pipar
» parmesanostur, rifinn

Aðferð

Afhýðið og fínsaxið lauk og hvítlauk. Látið smjör í víðan pott og bræðið við lágan hita. Látið saxaða laukinn þar út í og létt steikið í um 2 mín., án þess að laukurinn og smjörið brúnist. Hrærið stöðugt í með sleif. Bætið grjónunum út í og hrærið enn í. Þegar hrísgrjónin eru orðin „glær“ hellið þá hvítvíninu saman við og smávegis af soði. Hafið ávallt frekar lágan hita en náið samt suðu! Hrærið stöðugt í með sleif. Athugið að við rísottógerð þarf að vera yfir pottinum allan tímann og hræra. Bætið soðinu smátt og smátt út í.

Skerið fiskinn í hæfilega bita. Þegar hrísgrjónin hafa soðið í um 12 mín. og enn er verið að bæta út í soði. Látið þá saffran.ræðina saman við ásamt fiski, nema þeim sem viðkvæmastur er eins og t.d. lúða. Haldið áfram að bæta vökva út í pottinn eða þar til grjónin eru nákvæmlega soðin. Það tekur um 18 mín. og athugið að grjónin eiga að vera stökk undir tönn. Saltið og piprið eftir smekk.

Takið niðursoðnu tómatana og látið í matvinnsluvél. Hellið balsamediki og hlynsírópi yfir. Setjið basilíkuna út í pottinn og hrærið lauslega í pottinum. Látið tómatsósuna á botninn á eldföstu formi og leggið spínatblöðin þar ofan á. Látið rísottóið ofan á og smyrjið vel út í kantana í jafnt lag. Stráið að lokum parmesanosti yfir og bakið í ofni þar til osturinn er orðin gullinbrúnn. Athugið að þennan rétt má gera fyrirfram og hita svo upp í ofni. Hann hentar vel á hlaðborð.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar