Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Laxasporður piparsveinsins
- Hráefni
- » 1 stk. laxasporður
- » 3–4 stk. soðnar kartöflur
- » 1/4 stk. sítróna, safinn
- » 1–2 msk. smjör
- » 1 stk. dillkvistur
- » salt og hvítur pipar
Fyrir 1
Aðferð
Roðflettið og snyrtið laxasporðinn. Skerið soðnar kartöflur í sneiðar. Leggið kartöfluskífurnar á djúpan disk, laxasporðinn þar ofan á. Kreistið sítrónusafa yfir og leggið smjörklípuna ofan á fiskinn ásamt dillkvistinum. Kryddið með smá salti og hvítum pipar. Strekkið plastfilmu yfir og bakið í örbylgjuofni við 600w í 2– 3 mín. Tilbúið – verði ykkur að góðu með bráðholla fiskmáltíð. Uppskriftin miðast við einn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/792/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira









