Ofnbakað ýsuflak með basilíku

Hráefni
» 1 stk. meðalstórt ýsuflak
» 1 stk. sítróna
» lítið búnt basilíka eða steinselja
» 2 msk. jómfrúarolía t.d. frá Monte Vibiano
» 120 g kirsiberjatómatar
» 120 g smáspínat
» 60 g ætiþistlar
» 60 g svartar ólífur, steinlausar
» gróft sjávarsalt
» hvítur pipar úr kvörn

Fyrir 2

Aðferð

Roð- og beinhreinsið ýsuflakið. Raspið örlítið yst utan af sítrónunni, í um 1/2 teskeið. Hakkið basilíku eða steinselju fínt. Kreistið safann úr 1/2 sítrónu og blandið saman við ólífuolíuna. Veltið ýsuflakinu upp úr blöndunni. Skerið kirsiberjatómatana í tvennt. Leggið smáspínatið í botninn á eldföstu móti og dreifið tómötunum þar yfir ásamt ætiþistlum og ólífum. Leggið ýsuflakið þar yfir og saltið og piprið eftir smekk.

Bakið í ofni við 140°C í um 20 mín. Berið fram með nýjum soðnum kartöflum. Uppskriftin miðast við tvo.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar