Bleikja bökuð undir krydduðu kús kús

Hráefni
» 800 g bleikjuflök
» 1/4 –1/2 stk. chilialdin
» 150 g forsoðið kús kús
» 11/2 dl vatn
» 1/2 dl jómfrúarolía (Extra virgin olífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
» 3–5 stk. hvítlauksgeirar
» 2 sm engiferrót
» 1 tsk. steytt cuminfræ
» 1/2 tsk. steytt kóríanderfræ
» 1/2 tsk. steytt kardimommufræ
» gróft sjávarsalt
» hvítur pipar úr kvörn

Aðferð

Beinhreinsið og snyrtið bleikjuflökin. Fræhreinsið chili og skerið smátt. Afhýðið og saxið hvítlauk og flysjið og saxið engifer. Látið vatnið og ólífuolíuna saman í pott og látið suðuna koma upp. Bætið forsoðnu kús kús þar út í ásamt chili, engifer, hvítlauk og kryddi. Hrærið saman. Takið pottinn af hitanum og setjið lok á pottinn. Látið standa í 10 mín. Athugð að þessi blanda á að vera aðeins blaut. Látið bleikjuna í eldfast form og lag af krydduðu kús kús ofan á flökin. Bakið í ofni við 140°C í um 20 mín.

Berið fram með stökku blönduðu salati sem hefur verið snúið upp úr „balsamíkó vínagrettu“ í hlutföllunum: 4 hlutar jómfrúarolía á móti 1 hluta af balsamediki, ásamt grófu sjávarsalti eftir smekk. Uppskriftin miðast við fjóra

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar