Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Heilsteiktur skötuselur með salvíu og beikoni
- Hráefni
- » 800 g skötuselshali
- » 1 búnt salvía
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
- » 1 bréf lúxus beikon
- » 1 tsk. ólífuolía
- » 2–3 stk. skalottlaukar
- » 5–8 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 dl hvítvín eða rauðvín
- » 21/2 dl hænsnasoð
- » 2 msk. fersk steinselja
- » 2 msk. fersk basilíka
- » 2–3 msk. jómfrúarolía (Extra virgin t.d. frá Monte Vibiano)
Aðferð
Beinhreinsið og snyrtið skötuselshalann. Leggið flökin af skötuselshalanum saman, mjóan enda á móti þykkum, þannig að þetta verði jafnþykk rúlla. Leggið salvíublöð á milli. Saltið og piprið eftir smekk. Vefjið lúxusbeikoni utan um og bindið upp með rúllupylsugarni.Takið víða pönnu og brúnið rúlluna upp úr venjulegri ólífuolíu við meðalhita. Látið í eldfast form.
Afhýðið skalottlauk og hvítlauk, saxið fínt og brúnið á sömu pönnu. Hellið hvítvíni og hænsnasoði yfir. Sjóðið niður þar til soðið er orðið kröftugt í bragði. Saxið steinselju og basilíku og bætið þeim og jómfrúarolíunni, í mjórri bunu, út í og hrærið vel í með sleif. Hellið þessu yfir rúlluna og bakið við 140°C í um 20 mín. þegar fiskurinn er tilbúinn skerið þið utan af honum garnið og skerið hann síðan í 2–3 sm þykkar sneiðar. Berið fram með nýju íslensku grænmeti, stökku salati og ef vill nýbökuðu frönsku langbrauði. Uppskriftin miðast við fjóra.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/796/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira









