Svertikryddaður karfi með kreóla grænmeti

Hráefni
» 800 g karfaflök
» 2 stk. laukar
» 5–8 stk. hvítlauksgeirar
» 1/2 stk. græn paprika
» 1/2 stk. rauð paprika
» 3 msk. kornolía til steikingar
» 1 pakki smámaís
» 1 dós niðursoðnir tómatar
» 1 stk. lime, safinn
» 2 tsk. sykur
» cajun- eða kreóla-kryddblanda
» 2 msk. hveiti
» gróft sjávarsalt
» 1 dl kjúklingasoð
» „Basmati Wild“- hrísgrjónablanda

Aðferð

Roð- og beinhreinsið karfaflökin. Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið smátt. Fræhreinsið og skerið papriku í teninga. Skerið smámaís í sneiðar. Létt steikið lauk, hvítlauk, papriku og smámaís upp úr 2 msk. af olíu og bætið tómötum, lime-safa og sykri út í. Merjið tómatana aðeins. Kryddið með um 2 tsk. af sterkri cajun eða kreóla kryddblöndu. Sjóðið saman við vægan hita í 8–10 mín. Hellið sósunni í eldfast mót.

Blandið saman hveiti og sömu kryddblöndu og þið notuðuð í sósuna, magnið fer eftir smekk. Steikið karfaflökin við vægan hita. Saltið eftir smekk. Látið karfaflökin ofan á sósuna og stingið inn í 160°C heitan ofn í 5–8 mín. Berið fram með soðnum basmati- og villihrísgrjónum. Uppskriftin miðast við fjóra.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar