Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Heilsteikt rauðsprettuflak á steiktum kartöflum
- Hráefni
- » 1 stk. stór og feit rauðspretta
- » 2 msk. smjör
- » 1 msk. ólífuolía
- » 2 greinar timjan
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
- » soðnar kartöflur
- » 1 msk. ítölsk steinselja
- » 1 tsk. sítrónubörkur
- » gróft sjávarsalt
- » 75 g smjör
- » 1 sm engiferrót
- » 2–3 stk. hvítlauksgeirar
- » 1/3–1/2 stk. rautt chilialdin
- » 1 stk. lime, safinn
- » fersk ítölsk steinselja
- » gróft salt
Aðferð
Flakið og snyrtið rauðsprettuna og þerrið flökin á eldhúspappír. Bræðið saman smjör og ólífuolíu á stórri víðri pönnu. Látið heila hvítlauksgeira og timjankvisti á pönnuna. Þegar smjörblandan er farin að freyða og er að verða léttbrúnuð látið þá heilt rauðsprettuflak á pönnuna, með roðhliðina niður. Steikið aðeins á roðhliðinni og ausið stöðugt kryddaðri smjörfeitinni yfir með skeið meðan á steikingu stendur, þar til að roðið er orðið stökkt. Saxið steinselju og rífið sítrónubörkinn fínt. Skerið soðnar kartöflur í sneiðar og steikið á annarri pönnu upp úr smá smjöri eða ólífuolíu. Stráið steinselju og fínt rifnum sítrónuberki yfir. Saltið og piprið eftir smekk. Látið í eldfast fat og setjið rauðsprettuflökin yfir.Látið smjörið í pott og bræðið þar til það fer að brúnast létt. Afhýðið hvítlauk og fræhreinsið chili. Saxið engifer, hvítlauk, chili og steinselju fínt og látið út í ásamt safa úr einum lime ávexti. Saltið aðeins og piprið eftir smekk.
Látið fatið með rauðsprettunni inn í 200°C heitan ofn í 21/2–4 mín. eða þar til hún er elduð að ofan. Takið úr ofninum og hellið brúnaða kryddsmjörinu yfir. Berið fram sem rétt númer tvö á eftir stökku salati að ítölskum sið. Uppskriftin miðast við tvo.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/798/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










