Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Kreólabakaður skötuselur með rótargrænmeti
- Hráefni
- » 750 g skötuselur
- » 100 g sellerírót
- » 100 g steinseljurót
- » 100 g kartöflur
- » 100 g rauðbeður
- » 2–3 msk. ólífuolía
- » salt og pipar
- »
- » Kreóla-kryddblanda
- » 2 msk. salt
- » 1 msk. hvítlauksduft
- » 1 msk. svartur pipar, grófmalaður
- » 1 tsk. hvítur pipar
- » 2 msk. fersk basilíka
- » 2 msk. ferskt timjan
- » 1 dl ólífuolía
Aðferð
Skerið skötuselinn í fjóra jafna bita. Blandið kreólakryddblönduna; saxið niður basilíku og timjan og hrærið svo öllu kryddinu saman við olíuna. Þekið skötuselinn með kryddblöndunni og „marinerið“ í 30 mín. Skerið sellerírót, steinseljurót, kartöflur og rauðbeður í um 2 sm. teninga. Hitið olíu í potti, setjið grænmetið út í og látið krauma í um 40 mín. Smakkið til með salti og pipar. Bakið skötuselinn í ofni við 200°C í um 8 mín. Setjið síðan rótargrænmetið á disk og skötuselinn ofan á. Berið fram með jógúrtsósu og góðu salati.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/799/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira








