Gratíneraður plokkfiskur með saffrani

Hráefni
» 400 g þorskur, roð- og beinlaus
» 400 g saltfiskur, roð- og beinlaus
» 200 g nætursöltuð ýsa, roð- og beinlaus
» 600 g kartöflur

Aðferð

Skerið kartöflurnar í teninga og sjóðið. Sjóðið fiskinn í söltuðu vatni. Útbúið lauksósuna sem þið blandið soðna fiskinum og kartöflunum saman við.

Þessi uppskrift er notuð í Lauksósa Saffran-hollandaisesósa,

Meðlæti

Lauksósa

Hráefni
» 200 g skalottlaukur
» 100 g vorlaukur
» 2–3 msk. ólífuolía
» 4 dl mjólk
» 4 dl rjómi
» 1 dl smjörbolla
» salt og pipar
» 1 bolli basilíka

Aðferð

Afhýðið skalottlauk og fínsaxið ásamt vorlauk. Steikið skalottlauk og vorlauk í ólífuolíu í potti. Bætið mjólk og rjóma út í pottinn og þykkið síðan með smjörbollu þegar suðan kemur upp. Athugið að sósan á að vera mjög þykk. Smakkið til með salti og vel af pipar. Saxið niður basilíku og bætið út í. Blandið fiski og kartöflum saman við sósuna.

Saffran-hollandaisesósa

Hráefni
» 300 g smjör
» 3 stk. eggjarauður
» 1 stk. sítróna, safinn
» saffran
» salt og pipar

Aðferð

Bræðið smjörið í potti. Stíf þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði og blandið bræddu smjörinu varlega saman við. Smakkið til með sítrónusafa, saffran, salti og pipar. Setjið plokkfiskinn í smurt eldfast fat, síðan saffran-hollandaisesósu yfir og gratínerið undir grilli í bakarofni, í um 3 mín.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar