Þorskhnakkar með kryddjurtahjúp og jógúrtsósu

Hráefni
» 750 g þorskhnakkar
» 50 g basilíka
» 50 g steinselja
» 25 g timjan
» 100 g brauðrasp
» 1 dl ólífuolía
» salt og pipar

Aðferð

Fínsaxið basilíku, steinselju og timjan og blandað saman við brauðrasp. Bætið ólífuolíunni saman við. Skiptið þorskhnökkunum í fjóra hæfilega stóra bita, kryddið með salti og pipar og þekið með kryddjurtahjúpnum. Bakið þorskhnakkana í ofni við 200°C í um 8 mín. Útbúið jógúrtsósuna á meðan.

Gott er að bera þorskhnakkana fram með fersku salati og bökuðum kartöflum.

Þessi uppskrift er notuð í Jógúrtsósa

Meðlæti

Jógúrtsósa

Hráefni
» 4 dl hrein jógúrt
» 100 g agúrka
» 1 tsk. chiliduft
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 1/2 tsk. aromat

Aðferð

Afhýðið og fínsaxið hvítlauk ásamt agúrku og blandið saman við jógúrt, ásamt chilidufti og aromati.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar