Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Lax með rauðlauk og eplum
- Hráefni
- » 750 g laxaflök
- » 150 g epli
- » 150 g rauðlaukur
- » 1 búnt ferskt estragon
- » salt og pipar
- » 1 dl ólífuolía
Aðferð
Roð- og beinhreinsið laxaflökin og skerið í fjóra jafna bita. Afhýðið epli og rauðlauk, skerið í eplin teninga en rauðlaukinn í báta. Rífið niður estragon og blandið saman við eplin og rauðlaukinn. Setjið þetta í smurt eldfast mót, kryddið með salti og pipar og bætið 1 dl af ólífuolíu saman við. Setjið laxinn í mótið, smyrjið hann með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar. Bakið laxinn í ofni við 180°C í 10 mín. Gott að bera saffran-hollandaisesósu fram með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/805/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










