Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Bakaður þorskur í opnu ravíolí
- Hráefni
- » 1 kg. þorskflök
- » 4 stk. lasagne-plötur
- » salt og pipar
Aðferð
Roð- og beinhreinsið þorskflökin. Sjóðið lasagne-plöturnar í potti þar til „al dente“, eða allt að því soðnar. Skerið þorskinn í hæfilega bita og kryddið með salti og pipar. Bakið í 12–15 mín. við 180°C.Setjið þorskbitana á disk, salsa ofan á, lasagne-plötu yfir og sósuna umhverfis.
Þessi uppskrift er notuð í Tómatsalsa
Meðlæti
Tómatsalsa
- Hráefni
- » 4 stk. tómatar
- » 1 msk. fersk paprika
- » 1/2 stk. lítill rauðlaukur
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 1 tsk. malað cumin
- » 1 dl jómfrúarolía
- » 1/2 stk. lime, safinn
- » salt og svartur pipar
Aðferð
Skerið tómatana í tvennt, takið kjarnana úr og skerið í teninga. Fræhreinsið papriku og skerið í tenginga. Afhýðið rauðlauk og skerið í teninga. Afhýðið og saxið hvítlauk smátt. Blandið öllu sem talið er upp í tómatsalsa uppskriftinni saman. Útbúið „veloté“-grunnsósu og bætið við einni matskeið af dijon sinnepi.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/807/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










