Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Þorskur með kryddjurtahjúp
- Hráefni
- » 1 kg þorskflök
- »
- » Kryddjurtahjúpur
- » 60 g smjör
- » 175 g brauðrasp, ekki litað
- » 50 g steinselja
- » 100 g parmesanostur
- » 15 g mozzarellaostur (má sleppa)
- » 10 stk. basilíkulauf
- » 1 tsk. timjanlauf
- » salt og pipar
- » smjörpappír
Aðferð
Roð- og beinhreinsið þorskflökin og skerið í jafna bita. Blandið öllu sem talið er upp í kryddjurtahjúpsuppskriftinni saman í matvinnsluvél og maukið vel. Kryddið með salti og pipar. Setjið maukið á smjörpappír, leggið annan smjörpappír yfir og fletjið síðan út með kökukefli þar til hæðin á maukinu er um 1/2 sm. Setjið þetta í frysti í um 20 mín. eða þar til maukið er orðið sæmilega stíft. Takið þá efri pappírsörkina af og skerið kryddjurtahjúpinn í bita sem passa á fiskstykkin. Saltið fiskinn, setjið hjúpinn ofan á og bakið í ofni við 180°C í 12–15 mín.Gott er að bera tómat- og sítrónuolíu og steikta polentu fram með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/809/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










