Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Smálúða í eigin safa - innilokuð í álpappír
- Hráefni
- » 1 kg smálúðuflök
- » 2 dl jómfrúarolía (Extravirgin ólífuolía)
- » 2 msk. ferskt kóríander
- » 2 msk. ferskt timjan
- » 10 stk. basilíkublöð
- » salt og pipar
- » álpappír
Aðferð
Rífið stóra örk af álpappír, brjótið saman í tvennt og leggið á borð. Lyftið efri hlutanum og setjið smálúðuflökin á álpappírinn, með roðið niður. Penslið smálúðuna með olíunni og kryddið með salti og pipar. Saxið niður kóríander, timjan og basilíku og dreifið jafnt yfir flökin. Leggið efri hluta álpappírsins yfir og brjótið upp á hliðarnar, til að loka pakkanum. Forhitið ofninn í 180°C og setjið álpakkann inn í ofn, í 12–15 mín. Það er gott að bera hrísgrjón fram með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/810/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










