Innbakaðar rækjur með camembert

Hráefni
» 340 g rækjur
» 1 búnt steinselja
» 1 búnt basilíka
» 70 g camembertostur
» salt og pipar
» 1 pakki frosið smjördeig
» 1 stk. egg

Aðferð

Setjið rækjurnar í skál. Saxið steinselju og basilíku smátt og setjið yfir. Skerið camembertostinn í litla bita og bætið út í skálina. Hrærið vel saman og kryddið með salti og pipar. þýðið smjördeigið og skerið út 4 hringi, um 8 sm í þvermál. Finnið ykkur lítið ílát, t.d. lítinn bolla sem þið getið þrýst rækjublöndunni í og síðan hvolft úr á smjördeigshringana. Gætið þess að nóg pláss sé á jöðrunum þannig að hægt sé að festa lokið á. Búið lokið til með því að skera út hringi sem ná yfir rækjurnar og niður á botninn. Hrærið eggið með gaffli og penslið jaðrana á botninum. Setjið smjördeigslokin yfir og þrýstið þeim fast niður með gaffli, allan hringinn, til að festa botn og lok saman. Penslið bökurnar með eggi. Bakið í ofni í um 15 mín. við 180°C eða þar til bökurnar eru gullinbrúnar.

Þessi uppskrift er notuð í Sítrónu- og kryddjurtasósa

Meðlæti

Sítrónu- og kryddjurtasósa

Hráefni
» 2 dl sýrður rjómi, 18%
» 1/2 dl mjólk
» 1 tsk. sykur
» 1 msk. sítrónusafi
» 1 msk. graslaukur
» 1 msk. steinselja

Aðferð

Setjið sýrða rjómann í skál og hrærið út. Bætið mjólk, sykri og sítrónusafa út í. Fínsaxið graslauk og steinselju, bætið út í og hrærið öllu vel saman. Berið sósuna fram með bökunum.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar