Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Lax með soja, engifer og chili
- Hráefni
- » 1 kg laxaflök
- » 2 dl sæt sojasósa
- » 4 sm engiferrót
- » 1/2 stk. chilialdin
- » 2 dl olía
Aðferð
Roð- og beinhreinsið laxaflökin. Skerið fiskinn niður í álíka stóra bita. Afhýðið engifer, fræhreinsið chili og saxið smátt.Setjið engifer, chili, sojasósu og olíu í matvinnsluvél og maukið. Leggið laxabitana í smurt eldfast mót. Setjið maukið á laxinn og bakið í ofni við 180°C í um 10 mín.
Best er að útbúa sósuna með góðum fyrirvara og hafa tilbúna áður en laxinn er eldaður. það er gott að bera hlutlaust rísottó fram með réttinum því það dregur ekki of mikinn karakter frá þessum austurlenska bragðrússíbana.
Þessi uppskrift er notuð í Karrí-ananasolía
Meðlæti
Karrí-ananasolía
- Hráefni
- » 2 sm engiferrót
- » 1 msk. karrí
- » 1 dl hvítvínsedik
- » 4 dl jómfrúarolía (Extravirgin ólífuolía)
- » salt og pipar
Aðferð
Afhýðið ananas og skerið aldinkjötið í mjög litla teninga. Afhýðið engifer og rífið niður með rifjárni. Hellið helmingi jómfrúarolíunnar, 2 dl, í pott og hitið við vægan hita. Setjið karrí og engifer út í olíuna og hitið aðeins. Bætið ediki út í og sjóðið alveg niður. Setjið ananasbitana út í pottinn ásamt restinni af olíunni.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/814/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










