Steinbítur á linsubaunum

Hráefni
» 1 kg steinbítsflök
»
» Linsubaunir
» 120 g grænar linsubaunir
» 1 stk. rauðlaukur
» 3 stk. hvítlauksgeirar
» 1 tsk. ferskt chilialdin
» 1/2 stk. rauð paprika
» 2 dl jómfrúarolía (Extravirgin ólífuolía)
» vatn

Aðferð

Leggið linsubaunirnar í bleyti í eina klst. og skolið síðan. Afhýðið rauðlauk og hvítlauk og skerið niður ásamt chili og rauðri papriku. Hitið olíu á pönnu og setjið allt grænmetið, nema paprikuna, á pönnuna og mýkið í um 2 mín. Bætið baununum út á pönnuna og steikið í 2 mín. til viðbótar. Bætið vatni út á pönnuna, þreföldu rúmmáli baunanna, og sjóðið í um 45 mín. eða þar baunirnar eru soðnar. Setjið þá paprikuteningana út í. Ef baunirnar hafa ekki drukkið í sig allt vatnið sigtið þá restina frá.

Skerið steinbítsflök í bita og setjið í smurt eldfast fat. Kryddið með salti og pipar og bakið í ofni við 180°C í um 10 mín.

Setjið linsubauninrnar á diska, steinbítinn ofan á og balsamsírópið við hliðina.

Þessi uppskrift er notuð í Balsamsíróp

Meðlæti

Balsamsíróp

Hráefni
» 2 bollar balsmedik
» 100 g smjör

Aðferð

Setjið balsamedik í lítinn pott og sjóðið niður um 2/3 hluta. Skerið smjörið niður í litla bita. Takið pottinn af hellunni og hrærið smjörinu saman við edikið með písk þar til það er alveg bráðnað.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar