Pönnuristaður hörpudiskur

Hráefni
» 300 g hörpudiskur
» 1 stk. laukur
» 1 stk. gulrót
» 3 stk. sveppir
» 2–3 msk. ólífuolía
» 1 tsk. salt
» 1 tsk. karrí
» 50 g hveiti
» 1 dl hvítvín
» 1 dl rjómi

Aðferð

Afhýðið lauk og saxið niður ásamt gulrót og sveppum. Mýkið lauk, gulrót og sveppi í ólífuolíu á heitri pönnu. Blandið salti og karríi saman við hveitið og veltið hörpudiskinum upp úr krydduðu hveiti og steikið á pönnu í 2–3 mín. Bætið hvítvíni og rjóma út í og sjóðið þar til soðið þykknar. Berið hörpudiskinn fram með hvítlauksbrauði og/eða hrísgrjónum.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar