Grafin lúða

Hráefni
» 1 stk. lúðuflak
» plastfilma
»
» Graflúðukrydd
» 2 bollar sykur
» 1 bolli salt
» 1 bolli dill
» 2/3 bolli dillfræ
» 1/2 bolli fenníkufræ

Aðferð

Blandið öllu graflúðukryddinu saman í skál. Beinhreinsið lúðuflakið en hafið roðið á því. Leggið lúðuflakið á plastfilmu og snúið roðinu niður. þekið flakið mjög vel með kryddblöndunni. Gætið þess að setja minna krydd á sporðstykkið því það er þynnst. Vefjið flakinu inn í plastfilmuna svo að bragðið smiti ekki frá sér í ísskápnum. Geymið í ísskáp í tvo sólarhringa, þá er lúðan tilbúin. Berið gröfnu lúðuna fram þunnt sneidda með ristuðu brauði og graflaxsósu.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar