Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Smokkfiskur á pönnu
- Hráefni
- » 300 g smokkfiskur
- » 1 stk. laukur
- » 3 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 stk. rauð paprika
- » 3 stk. sveppir
- » 2 msk. ólífuolía
- » 1 msk. dijon sinnep
- » 1 tsk. salt
- » 1 dl hvítvín
- » 1 dl rjómi
Aðferð
Skerið smokkfiskinn í strimla. Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið niður ásamt, papriku og sveppum. Mýkið grænmetið í ólífuolíu á heitri pönnu ásamt smokkfiski. Bætið sinnepi, salti, hvítvíni og rjóma á pönnuna og sjóðið þar til sósan þykknar, að hámarki í 3–4 mín. Berið smokkfiskinn fram með hvítlauksbrauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/822/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










