Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Humarklattar
- Hráefni
- » 3 stk. egg
- » 2 bollar rjómi
- » 4 msk. hveiti
- » maldon salt
- » 1 búnt sæt tælensk basilíka
- » 2 msk. hvítlauksolía
- » 12 stk. humarhalar
- » 1 tsk. sítrónusafi
Aðferð
Hrærið saman eggjum, rjóma og hveiti og saltið örlítið. Saxið basilíku smátt og setjið helminginn út í deigið, ásamt 1 tsk. af hvítlauksolíu. Skelflettið humarinn, skerið í tvennt og bætið út í deigið. Takið það sem eftir er af basilíkunni og maukið í mortéli. Blandið sítrónusafa og afganginum af olíunni saman við og leggið til hliðar. Bakið 8–12 litla klatta úr deiginu á pönnukökupönnu. Berið klattana fram volga. Gott er að strá ögn af maldon salti yfir klattana þegar þeir eru komnir á diska og setja basilíkumaukið við hliðina og yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/829/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira









