Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Túnfisktartar
- Hráefni
- » 400 g túnfiskur, nýr eða frosinn
- » 2 stk. skalottlaukar
- » 2 stk. vorlaukar
- » 1/2 stk. rautt chilialdin
- » 2 msk. ferskt kóríander
- » 20 stk. baunaspírur
- » 2 tsk. kapers
- » 40 g fersk engiferrót
- » 1 stk. sítróna, börkur
- » 3 msk. basilíkuolía
- » salt og pipar
- » 50 g parmesanostur
- » nokkur rauð basilíkublöð
- » 1 tsk. sesamfræ
Aðferð
Hakkið túnfiskinn smátt með hníf. Afhýðið og saxið skalottlauka. Saxið, vorlauka, chilialdin og kóríander mjög smátt og blandið helmingnum saman við túnfiskinn en hinum helmingnum saman við baunaspírurnar. Saxið kapers smátt og blandið saman við túnfiskmaukið. Rífið niður engifer og börk af sítrónu og setjið saman við túnfiskmaukið. Saltið og blandið vel saman. Mótið í kökur og setjið á diska. Hellið basilíkuolíu óreglulega yfir og umhverfis. Setjið baunaspírunar ofan á tartarinn, piprið og stráið að lokum rifnum parmesanosti yfir diskana ásamt basilíkublöðum og sesamfræjum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/830/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










