Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Stökkt salat með reyktri ýsu
- Hráefni
- » 250 g reykt ýsa
- » 3 msk. majónes
- » 3 msk. sýrður rjómi, 18%
- » 2 msk. dijon sinnep
- » 2 msk. hlynsíróp
- » 1/2 stk. sítróna, safinn
- » 1 poki blandað salat
- » 2 msk. jómfrúarolía (Extra virgin olífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- » sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
- » nokkrir bitar ýsuharðfiskur, barinn
Aðferð
Látið botnfylli af vatni í djúpa pönnu eða víðan pott. Roðflettið reyktu ýsuna og skerið í bita og látið á pönnuna. Setjið lok á pönnuna, látið suðuna koma upp, takið af hitanum og látið standa í um 10 mín. Þannig gufusjóð ið þið ýsuna. Takið af pönnunni og kælið.Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma, sinnepi, hlynsírópi og sítrónusafa. Veltið salatinu upp úr ólífuolíu og saltið aðeins og piprið. Látið salatið í háa hrúgu á miðjan disk og setjið sinnepsdressingu í kring með skeið. Skerið því næst gufusoðnu ýsuna í fínar sneiðar og leggið þær jafnt í kringum salatið, ofan á sinnepsdressinguna. Rífið harðfiskinn smátt og stráið litlu magni yfir salatið. Gott er að bera ristað ljóst rúgbrauð fram með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/832/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










