Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Piparrótarsíld
- Hráefni
- » 6 stk. marineruð síldarflök.
- » 1/2 dl sýrður rjómi, 18%
- » 2 msk. dijon sinnep
- » 1/2 stk. sítróna, safinn
- » 1 tsk. hlynsíróp
- » 2–3 msk. fersk rifin piparrót
- » 1 búnt graslaukur
Aðferð
Skerið síldarflökin í bita, látið roðhliðina snúa upp. Blandið saman sýrðum rjóma, dijon sinnepi, sítrónusafa, hlynsírópi og rifinni piparrót. Látið sósuna á fat, leggið síldarbitana ofan á og klippið graslauk yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/834/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira









