Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Crostini með humri og tómötum:
- Hráefni
- » 1–2 stk. snittubrauð
- » 1/2 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- »
- » 6 stk. humarhalar
- » 3 stk. tómatar
- » 1 msk. basilíka
- » salt og pipar
Aðferð
Skerið snittubrauð í um 11/2 sm þykkar sneiðar og penslið sneiðarnar með ólífuolíu, báðum megin. Setjið brauðið í ofnskúffu undir glóandi grill og ristið. Snúið snittunum við og grillið á hinni hliðinni. Athugið að vera vel á verði á meðan snitturnar eru grillaðar þannig að þær fái nákvæmlega rétta litinn, verði gullinbrúnar og stökkar.Skelflettið humarhalana, steikið á pönnu og kryddið með salti og pipar. Skerið tómatana í tvennt, takið kjarnana úr og skerið í teninga. Fín saxið basilíku. Blandið saman tómötum, basilíku, salti og pipar. Látið um eina matskeið af blöndunni á hverja snittu og steiktan humarhala ofan á.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/835/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










