Crostini með hörpudisk í sætri chilisósu:

Hráefni
» 1–2 stk. snittubrauð
» 1/2 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
»
» 6 stk. hörpudiskar, miðlungstórir
» salt og pipar
» jöklasalat
» sæt chili-sósa
» kóríanderlauf

Aðferð

Skerið snittubrauð í um 11/2 sm þykkar sneiðar og penslið sneiðarnar með ólífuolíu, báðum megin. Setjið brauðið í ofnskúffu undir glóandi grill og ristið. Snúið snittunum við og grillið á hinni hliðinni. Athugið að vera vel á verði á meðan snitturnar eru grillaðar þannig að þær fái nákvæmlega rétta litinn, verði gullinbrúnar og stökkar.

Steikið hörpudisk á pönnu og kryddið með salti og pipar. Setjið á djúpan disk og smávegis af sætri chili-sósu yfir humarinn nýsteiktan. Breiðið plastfilmu yfir og látið standa í kæli í 2 klst. Sneiðið jöklasalat fínt og leggið á snittuna. Setjið hörpudiskinn þar ofan á og skreytið með fallegu laufi af fersku kóríander.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar