Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Crostini með reyktum laxi, rauðlauk og kapers:
- Hráefni
- » 1–2 stk. snittubrauð
- » 1/2 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- »
- » 6 sneiðar reyktur lax
- » sýrður rjómi
- » dijon sinnep
- » 1/2 stk. rauðlaukur
- » kapers
Aðferð
Skerið snittubrauð í um 11/2 sm þykkar sneiðar og penslið sneiðarnar með ólífuolíu, báðum megin. Setjið brauðið í ofnskúffu undir glóandi grill og ristið. Snúið snittunum við og grillið á hinni hliðinni. Athugið að vera vel á verði á meðan snitturnar eru grillaðar þannig að þær fái nákvæmlega rétta litinn, verði gullinbrúnar og stökkar.Afhýðið rauðlauk og hakkið smátt. Blandið saman til helminga sýrðum rjóma og dijon sinnepi. Smyrjið sinnepsblöndunni á snitturnar. Leggið samanbrotna laxasneið þar ofan á. Stráið rauðlauk og kapers yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/837/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










