Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Lime- og chilimarineruð lúða „ceviche“
- Hráefni
- » 200 g smálúðuflök
- » 4 stk. lime, safinn
- » sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
- » 1/2–1 stk. rautt chilialdin
- » 1/6 stk. agúrka
- » 1–2 stk. vorlaukar
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 1–2 stk. avókadó
- » 4 msk. jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- » 2 msk. ferskt kóríander
- » 1/2 stk. jöklasalat
- » plastfilma
Aðferð
Það er mikilvægt að smálúðan sé ný og fersk. Kreistið safann úr lime og skerið lúðuna í um 4 sm langar þunnar ræmur. Leggið hana á djúpan disk eða skál, saltið aðeins og piprið og hellið lime-safa yfir. Breiðið plastfilmu yfir diskinn og látið standa í kæli í minnst 2 klst. Fiskurinn marinerast í safanum.Fræhreinsið chili og skerið í fínar sneiðar. Magnið af chili má auka en það ræðst af því hversu bragðsterkan mat fólk vill. Kjarnahreinsið agúrkuna og skerið í litla teninga. Fjarlægið ystu blöðin af vorlauknum og skerið hann svo í þunnar sneiðar. Afhýðið og fínhakkið hvítlauksgeira. Skerið avókadó langsum, fjarlægið steininn, flysjið og skerið í teninga. Blandið öllu grænmetinu saman í skál ásamt ólífuolíu og söxuðum kóríanderlaufum. Breiðið plastfilmu yfir og látið standa í kæli í 1 klst. Blandið kryddlegna fiskinum og grænmetinu saman.
Takið sex stökk jöklasalatblöð, úr innri kjarna, nokkurskonar 6 fallegar salatblaðsskálar. Setjið á diska og skiptið kryddlegnu lúðunni og grænmetinu á salatblöðin rétt áður en rétturinn er borinn fram ferskur og kaldur.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/838/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira









