Appelsínumarineruð bleikja „ceviche“

Hráefni
» 200 g bleikja
» 2 stk. appelsínur, safinn
» 11/2 stk. sítróna, safinn
» sjávarsalt
» hvítur pipar
» 1 stk. appelsína
» 1/2 stk. rauðlaukur
» 1/2 stk. rautt chilialdin
» 6 stk. kirsiberjatómatar, þroskaðir
» 1 msk. sesamolía
» 1 tsk. sojasósa
» 1 msk. sætt mirin (japanskt hrísgrjónavín)
» 1 msk. minta
» 1 bátur vatnsmelóna

Aðferð

Roð- og beinhreinsið bleikjuna. það er mikilvægt að hún sé ný og fersk. Skerið bleikjuna í um 4 sm ræmur, látið í skál og saltið aðeins og piprið. Kreistið safa úr appelsínum og sítrónum, blandið saman og hellið yfir bleikjuna. Breiðið plastfilmu yfir og látið standa í kæli í minnst 2 klst. þannig marinerast fiskurinn. Flysjið appelsínuna alveg inn að aldinkjöti, skerið appelsínubátana út og fjarlægið steinana. Afhýðið rauðlauk og hakkið fínt. Fræhreinsið chili og skerið í fína strimla. Skerið hvern kirsiberjatómat í fjóra hluta og fjarlægið kjarnana. Saxið mintuna fínt og blandið svo öllu sem talið er upp í uppskriftinni saman. Setjið í djúpa skál, breiðið plastfilmu yfir og látið standa í kæli í minnst 1 klst. Blandið þessu svo saman við bleikjuna rétt áður en rétturinn er borinn fram. Skerið vatnsmelónubátinn í um 1 sm þykkar og jafnar sneiðar, fallega þríhyrninga. Fjarlægið alla steina. Leggið vatnsmelónusneiðarnar á diska, látið bleikjublönduna þar ofan á og skreytið síðan með appelsínulaufum og mintublöðum.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar