Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Risahörpudiskur á „polentu“
- Hráefni
- » 320 g risahörpudiskur
- » 21/2 dl polentamjöl
- » 6 dl kjúklingasoð
- » 50 g parmesanostur, rifinn
- » 30 g smjör
- » 50 g kúrbítur
- » 50 g rauðlaukur
- » 25 dl hindberjaedik
- » 25 dl ólífuolía
- » salt og pipar
Aðferð
Byrjið á að gera polentuna. Hitið kjúklingasoð í potti, hellið polentamjöli varlega saman við og hrærið stöðugt í á meðan „grauturinn“ er að þykkna. Þegar grauturinn er orðinn þykkur er potturinn tekinn af hitanum og parmesanosti og smjöri blandað varlega út í. Setjið í form og kælið í um 4 klst. Formið má klæða með smjörpappír eða smyrja með olíu en það er óþarfi.Skerið kúrbít og rauðlauk í teninga, um 1 x 1 sm, og kryddið vel með salti og pipar. Hellið ólífuolíu og hindberjaediki yfir grænmetið og hrærið vel saman. Látið standa jafn lengi og polentuna eða í um 4 tíma. Takið úr forminu og mótið í fallega þríhyrninga. Snyrtið hörpudiskinn, það er takið skeggið af. Ristið polentu og hörpuskel á pönnu og kryddið með salti og pipar. Setjið polentuna á disk, hörpudiskinn ofan á og grænmetið með marineringunni umhverfis.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/841/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira









