Hagkaup
|
mbl
|
30. október
Rækjukokkteill með avókadómauki
- Hráefni
- » 360 g rækjur
- » 2 stk. avókadó
- » 1/2 stk. laukur
- » 1 stk. tómatur
- » 1/2 stk. sítróna, safinn
- » 1/2 haus jöklasalat
- » 1 stk. lime, safinn
- » salt og pipar
- » kerfill (má sleppa)
Aðferð
Afþíðið rækjurnar. Þær eiga að vera stórar og góðar og avókadó mjúkt og þroskað. Afhýðið avókadó, skerið í tvennt og takið steinana úr. Skerið síðan í 1 x 1 sm teninga. Afhýðið lauk, fínsaxið ásamt tómat og blandið saman við avókadóteningana. Kreistið safann úr sítrónunni yfir og smakkið til með salti og pipar. Skerið niður jöklasalat og saxið fínt. Setjið salatið í botninn á fjórum skálum og síðan rækjurnar. Kreistið lime-safa yfir og setjið topp af avókadómauki efst. Það er fallegt að skreyta skálarnar með lime og kerfli og bera síðan fram með snittubrauði eða ristuðu brauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/844/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










