Graflax með sinnepssósu

Hráefni
» 1 stk. laxaflak, um 500 g
» 35 msk. brún dillfræ
» 20 msk. salt
» 10 msk. sykur
» 5 msk. fenníkuduft
» 21/2 msk. hvítur pipar

Aðferð

Malið dillfræin í matvinnsluvél þar til þau verða að fínum salla eða kaupið þau möluð. Blandið síðan möluðu dilli, salti, sykri, fenníkudufti og grófmöluðum hvítum pipar vel saman og setjið í botninn á stóru fati sem þið notið til að grafa laxinn í. Setjið laxaflakið ofan á kryddblönduna og setjið einnig vel af blöndunni ofan á. Geymið á köldum stað í tvo sólarhringa.

Þessi uppskrift er notuð í Sinnepssósa

Meðlæti

Sinnepssósa

Hráefni
» 3 msk. sætt sinnep
» 2 msk. gróft sinnep
» 1 msk. dijon sinnep
» 1/2 dl vatn
» 4 msk. sykur
» 3 dl olía
» 3 msk. dill
» salt og pipar

Aðferð

Blandið sinnepstegundum og sykri saman í skál. Hrærið olíunnni í mjórri bunu saman við og hrærið stöðugt. Bætið vatninu út í þegar sósan fer að þykkna. Skerið dillið fínt, setjið út í og smakkið til með salti og pipar.

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar