Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Ostabrauðterta
- Hráefni
- » 150 g majónes
- » 150 g sýrður rjómi
- » 1 stk. lítill laukur
- » 1 stk. Camembert ostur
- » 1 stk. brieostur
- » 1 stk. Dala-Yrja
- » 20 stk. dökk vínber, steinlaus
- » 3 stk. brauðtertusneiðar
Aðferð
Hrærið saman sýrðum rjóma og majónesi, saxið laukinn smátt niður og blandið honum saman við hræruna. Skerið ostana niður í litla bita og hvert vínber í fernt, setjið bæði ostana og vínberin saman við salatið. Það er gott að setja smávegis af valhnetum saman við salatið. Setjið salatið á brauðtertusneiðarnar og skreytið t.d með Lollo rosso salati og öðru sem ykkur finnst passa með.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/847/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










