Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Grænmetisbrauðterta með mozzarellaosti
- Hráefni
- » Nýtt semolina brauð
- » ólífuolía
- » Emmenthal ostur í sneiðum
- » eikarlaufssalat og annað salat
- » bufftómatar
- » mozzarellaostur
- » basilíka
- » grillaður kúrbítur (zucchini) frá Sacla
- » grilluð paprika frá Sacla
- » svartur pipar
Aðferð
Skerið ítalskt semolinabrauð í þrjár sneiðar, langsum. Setjið örlítið af ólífuolíu yfir endasneiðarnar en Emmenthal ost eða annan góðan ost á sneiðina í miðjunni. Grillið neðri sneiðarnar tvær í ofni og létt ristið. Gætið þess að osturinn brenni ekki og kælið síðan. Setjið salat, tómata, mozzarellaost og basilíku á neðstu sneiðina. Leggið svo ostabrauðið yfir og setjið salat, kúrbít og papriku ofan á ostinn. Kryddið með svörtum pipar. Setjið síðustu sneiðina yfir og þrýstið létt á brauðið.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/848/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










