Laxabrauðterta

Hráefni
» hvítt brauðtertubrauð
»
» Laxasalat
» 300 g reyktur lax
» 5 stk. harðsoðin egg
» 200 g majónes
» 100 g sýrður rjómi
» aromat krydd
»
» Eggjahræra
» 4 stk. egg
» 3 msk. rjómi
» 100 g reyktur lax
» salt og pipar
»
» skraut:
» reyktur lax í sneiðum
» ferskt grænmeti

Aðferð

Blandið saman öllu sem á að fara í laxasalatið og kælið. Þeytið eggin og rjómann í eggjahræruna og kryddið með salti og pipar. Setjið reykta laxinn í matvinnsluvél, maukið hann og bætið eggjablöndunni saman við í restina.

Hrærið lítillega og gætið þess að þetta fari ekki í mauk. Steikið eggjahræruna á pönnu, snúið við og setjið á disk. Skiptið brauðtertubrauðinu í þrennt, langsum. Setjið laxasalatið á neðsta lagið, eggjahræruna í miðjuna og salat yfir efsta lagið. Smyrjið einnig laxasalati á hliðar brauðtertunnar. Skreytið með þunnum sneiðum af reyktum laxi og fersku grænmeti.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar