Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Létt brauðterta
- Hráefni
- » 3 sneiðar hvítt eða gróft brauð, langskorið
- » ólífuolía
- » 5 stk. sólþurrkaðir tómatar
- » 1 stk. lárpera (avókadó), vel þroskuð
- » 3 msk. furuhnetur
- » 1/2 krukka fetaostur
- » blandað salat
Aðferð
Penslið brauðið með ólífuolíunni, ristið það í ofni og kælið síðan. Saxið niður sólþurrkuðu tómatana og lárperuna. Ristið furuhneturnar í ofni eða á pönnu. Myljið fetaostinn með fingrunum og blandið svo öllu saman við blandaða salatið. Leggið eina góða lúku af salatblöndunni á neðsta brauðið og dreifið vel yfir brauðið. Setjið næsta lag af brauði ofan á og á það aðra góða lúku af salatinu. Þegar síðasta brauðið hefur verið lagt yfir pressið þið lítillega á brauðtertuna og skreytið hana síðan eftir smekk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/851/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










