Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Roastbeefbrauðterta
- Hráefni
- » 3 sneiðar maltbrauð
- » 2 sneiðar gróft samlokubrauð, skorið langsum
- » 200 g majónes
- » 100 g sýrður rjómi
- » salat
- » roastbeef sneiðar
- » 5 stk. harðsoðin egg í sneiðum
- » steiktur laukur
- » remúlaði
- » sýrðar gúrkur
- »
- » skraut:
- » nokkrar þunnar roastbeefsneiðar
- » remúlaði
- » ferskjur og fleira
Aðferð
Blandið saman majónesi og sýrðum rjóma. Smyrjið grófa samlokubrauðslengju með blöndunni og leggið salat yfir, síðan roastbeefsneiðar, yfir allan botninn, egg og steiktan lauk. Raðið þremur sneiðum af maltbrauði ofan á og smyrjið með remúlaði. Setjið vel af steiktum lauk yfir remúlaðið og raðið sýrðum gúrkum yfir, síðan setjið þið salat og roastbeef ofan á. Leggið aðra sneið af samlokubrauði yfir og smyrjið majónesblöndu yfir brauðtertuna til að áleggið tolli betur utan á. Reynið að hafa roastbeefsneiðarnar sem fara utan á brauðtertuna þunnar svo að gott sé að skera brauðtertuna. Skreytið til dæmis með ferskjum og remúlaði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/854/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










