Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Sjávarfangsbrauðterta
- Hráefni
- » brauðtertubrauð
- »
- » Salat:
- » 100 g hörpudiskur
- » 6 stk. harðsoðin egg
- » 100 g reyktur lax
- » 200 g rækjur
- » 30 g blaðlaukur, hvíti hlutinn
- » 100 g majónes
- » 100 g sýrður rjómi
- » 1 tsk. chilisósa frá Heinz
- » 2 msk. dill, saxað
Aðferð
Steikið hörpudisk upp úr smávegis af olíu án þess að brúna hann og kælið síðan. Stappið harðsoðnu eggin lauslega með gaffli. Skerið reykta laxinn og hörpudiskinn í bita á stærð við rækjurnar. Sneiðið niður blaðlaukinn og blandið síðan öllu vel saman og smyrjið salatinu á brauðtertubrauð ið sem haft er í þremur lögum. Skreytið með því sem til er af grænmeti og sjávarfangi, hvort sem það eru rækjur, lax eða annar fiskur.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/855/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










