Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Grænmetisbaka með kúrbít
- Hráefni
- » 250 g bökudeig, sjá grunndeig fyrir „Quiche“-böku
- » 2 stk. rauðar paprikur
- » 2 stk. grænar paprikur
- » 1/2 stk. rauðlaukur
- » 150 ml rjómi
- » 1 stk. egg
- » salt og pipar
- » 1 stk. kúrbítur (zucchini)
Aðferð
Skerið paprikurnar og rauðlaukinn í bita og steikið upp úr olíu á pönnu í um 7-8 mín., brúnið ekki. Blandið saman rjómanum og egginu og þeytið með gaffli, kryddið með salti og pipar og hellið yfir pönnuna. Látið suðuna koma upp en sjóðið ekki.Fletjið út deigið, setjið það í smurt eldfast mót og hellið blöndunni yfir. Skerið kúrbítinn í sneiðar og steikið þær upp úr olíu, brúnið lítillega og raðið síðan yfir bökuna. Bakið grænmetisbökuna við 190°C í um 25 mín.
Þessi uppskrift er notuð í Grunndeig fyrir quiche-böku
Meðlæti
Grunndeig fyrir quiche-böku
- Hráefni
- » 150 g kalt smjör
- » 250 g hveiti
- » 1/2 tsk. salt
- » 1 stk. eggjarauða
- » 4 msk. vatn
Aðferð
Skerið kalt smjörið niður í litla bita og hnoðið það saman við hveitið. Saltið síðan og vinnið deigið vel saman. Bætið eggjarauðu og vatni saman við og gætið þess að vinna deigið ekki of mikið. Látið bökudeigið standa í kæli í að minnsta kosti 30 mín. áður en það er flatt út. Til að fá deigið stökkara er smjörmagnið minnkað um 30-40 g.Ef bökuuppskriftin er stækkuð, bakan höfð stór og botninn þykkur, er betra að baka botninn áður en fyllingin er sett í, annars er hætta á að botninn bakist ekki í gegn. Eins er hætt við að gat komi á botninn, og fyllingin leki út, ef botninn er mjög þunnur. Fletjið deigið þunnt út og setjið í form, gatið hér og þar með gaffli. Setjið smjörpappír yfir deigið í forminu og fyllið upp með hrísgrjónum eða baunum til að botninn formist vel.
Bakið botninn við 220°C í um 15-20 mín. eða þangað til hann hefur fengið smá lit.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/862/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira








