Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Kjötbaka
- Hráefni
- » bökudeig, sjá grunndeig fyrir „Quiche“-böku
- » 100 g nautahakk
- » 1/2 stk. laukur
- » 5 stk. sveppir
- » 5 sneiðar beikon
- » 1 stk. tómatur
- » 1 stór gulrót
- » 2 stk. egg
- » 100 ml matreiðslurjómi 15%
- » salt og pipar
Aðferð
Steikið nautahakkið og laukinn saman á pönnu, en beikonið og sveppina sér. Skerið tómatinn í tvennt og takið fræin innan úr honum. Skerið aldinkjötið í litla teninga og blandið öllu saman: nautahakki, lauk, beikoni, sveppum og gulrótinni sem þið skerið fyrst í bita. Fletjið deigið út og setjið í smurt form. Þeytið eggin með gaffli, hellið rjómanum saman við og kryddið með salti og pipar. Setjið hakkblönduna yfir deigið og hellið eggjablöndunni yfir. Bakið við 190°C í um 25 mín. og berið síðan fram með fersku salati.Þessi uppskrift er notuð í Grunndeig fyrir quiche-böku
Meðlæti
Grunndeig fyrir quiche-böku
- Hráefni
- » 150 g kalt smjör
- » 250 g hveiti
- » 1/2 tsk. salt
- » 1 stk. eggjarauða
- » 4 msk. vatn
Aðferð
Skerið kalt smjörið niður í litla bita og hnoðið það saman við hveitið. Saltið síðan og vinnið deigið vel saman. Bætið eggjarauðu og vatni saman við og gætið þess að vinna deigið ekki of mikið. Látið bökudeigið standa í kæli í að minnsta kosti 30 mín. áður en það er flatt út. Til að fá deigið stökkara er smjörmagnið minnkað um 30-40 g.Ef bökuuppskriftin er stækkuð, bakan höfð stór og botninn þykkur, er betra að baka botninn áður en fyllingin er sett í, annars er hætta á að botninn bakist ekki í gegn. Eins er hætt við að gat komi á botninn, og fyllingin leki út, ef botninn er mjög þunnur. Fletjið deigið þunnt út og setjið í form, gatið hér og þar með gaffli. Setjið smjörpappír yfir deigið í forminu og fyllið upp með hrísgrjónum eða baunum til að botninn formist vel.
Bakið botninn við 220°C í um 15-20 mín. eða þangað til hann hefur fengið smá lit.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/863/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










