OSTA- OG LAUKBAKA

Hráefni
» bökudeig:
» 180 g hveiti
» 1/2 tsk. salt
» 100 g smjör
» 3-4 msk. vatn
»
» fylling:
» 2 stk. rauðlaukar
» 2 stk. hvítir laukar
» 4 stk. hvítlauksgeirar
» 3 msk. fersk steinselja
» 75 g rifinn ostur
» salt og pipar

Aðferð

Sigtið hveitið með saltinu og blandið mjúku smjörinu saman við með höndunum. Bætið vatninu út í og hnoðið þar til komið er gott deig. Látið deigið standa í um 1/2 klst. áður en það er flatt út.

Skerið niður rauðlauk, hvítan lauk og hvítlauk og steikið upp úr olíu í um 10 mín. eða þar til laukarnir eru orðnir mjúkir, brúnið ekki. Blandið steinselju og rifnum osti saman við og kryddið með salti og pipar. Hitið áfram en gætið þess að osturinn á ekki að bráðna alveg. Fletjið bökudeigið þunnt út og setjið í eldfast mót. Hellið fyllingunni yfir og bakið við 220°C í um 20 mínútur. Ef bakan er höfð stærri er hitinn á ofninum lækkaður og bökunartíminn lengdur.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar