Hagkaup
|
mbl
|
1. nóvember
Pepperonibaka
- Hráefni
- » bökudeig, sjá grunndeig fyrir „Quiche“-böku
- » 10 sm lengja mjótt pepperoni
- » 6-8 stk. sveppir
- » 5 sm blaðlaukur
- » salt og pipar
- » 3 stk. ananashringir
- » 3 msk. gráðaostur
- » 3 stk. egg
- » 110 ml matreiðslurjómi 15%
- » salt og pipar
Aðferð
Fletjið deigið út og setjið í form. Skerið pepperoni niður í litla bita. Brytjið sveppina og blaðlaukinn og steikið á pönnu, kryddið með salti og pipar. Setjið pepperoni, sveppi og blaðlauk á bökudeigið í forminu. Skerið ananasinn niður og setjið yfir ásamt gráðaosti sem sáldrað er á víð og dreif. Blandið saman eggjum og rjóma, þeytið með gaffli, kryddið lítillega með salti og pipar og hellið yfir bökuna. Bakið við 200°C í um 25 mín.Þessi uppskrift er notuð í Grunndeig fyrir quiche-böku
Meðlæti
Grunndeig fyrir quiche-böku
- Hráefni
- » 150 g kalt smjör
- » 250 g hveiti
- » 1/2 tsk. salt
- » 1 stk. eggjarauða
- » 4 msk. vatn
Aðferð
Skerið kalt smjörið niður í litla bita og hnoðið það saman við hveitið. Saltið síðan og vinnið deigið vel saman. Bætið eggjarauðu og vatni saman við og gætið þess að vinna deigið ekki of mikið. Látið bökudeigið standa í kæli í að minnsta kosti 30 mín. áður en það er flatt út. Til að fá deigið stökkara er smjörmagnið minnkað um 30-40 g.Ef bökuuppskriftin er stækkuð, bakan höfð stór og botninn þykkur, er betra að baka botninn áður en fyllingin er sett í, annars er hætta á að botninn bakist ekki í gegn. Eins er hætt við að gat komi á botninn, og fyllingin leki út, ef botninn er mjög þunnur. Fletjið deigið þunnt út og setjið í form, gatið hér og þar með gaffli. Setjið smjörpappír yfir deigið í forminu og fyllið upp með hrísgrjónum eða baunum til að botninn formist vel.
Bakið botninn við 220°C í um 15-20 mín. eða þangað til hann hefur fengið smá lit.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/865/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










