Skinku- og sveppabaka

Hráefni
» bökudeig, sjá grunndeig fyrir „Quiche“-böku
» sveppir
» hvítlaukur
» smjör
» paprika
» dönsk skinka úr dós
» dala brie
» mozzarellaostur
» 3 stk. egg
» 125 ml matreiðslurjómi 15%
» salt og pipar

Aðferð

Fletjið út deigið og setjið í smurt form. Skerið sveppina niður og steikið þá ásamt hvítlauk upp úr smjöri á pönnu. Bætið papriku saman við í restina og blandið vel saman. Skinkan er skorin í góða bita og sett ásamt sveppum og papriku yfir deigið. Klípið ostinn niður og setjið yfir allt saman. Þeytið eggin með gaffli, blandið rjómanum saman við og kryddið með salti og pipar. Hellið eggjablöndunni yfir bökuna og stráið svo mozzarellaostinum yfir. Bakið við 190°C í um 25 mín.

Þessi uppskrift er notuð í Grunndeig fyrir „quiche“-böku

Meðlæti

Grunndeig fyrir „quiche“-böku

Hráefni
» 150 g kalt smjör
» 250 g hveiti
» 1/2 tsk. salt
» 1 stk. eggjarauða
» 4 msk. vatn

Aðferð

Skerið kalt smjörið niður í litla bita og hnoðið það saman við hveitið. Saltið síðan og vinnið deigið vel saman. Bætið eggjarauðu og vatni saman við og gætið þess að vinna deigið ekki of mikið. Látið bökudeigið standa í kæli í að minnsta kosti 30 mín. áður en það er flatt út. Til að fá deigið stökkara er smjörmagnið minnkað um 30-40 g.

Ef bökuuppskriftin er stækkuð, bakan höfð stór og botninn þykkur, er betra að baka botninn áður en fyllingin er sett í, annars er hætta á að botninn bakist ekki í gegn. Eins er hætt við að gat komi á botninn, og fyllingin leki út, ef botninn er mjög þunnur. Fletjið deigið þunnt út og setjið í form, gatið hér og þar með gaffli. Setjið smjörpappír yfir deigið í forminu og fyllið upp með hrísgrjónum eða baunum til að botninn formist vel.

Bakið botninn við 220°C í um 15-20 mín. eða þangað til hann hefur fengið smá lit.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar